Skylt að hlusta á rás 16 á VHF talstöð

Landssamband smábátaeigenda vill að gefnu tilefni brýna fyrir félagsmönnum sem og öllum sjófarendum að sinna lögboðinni hlustun á rás 16. 
Rás 16 er neyðar- og uppkallsrás og er sjómönnum skylt að hafa hana opna.
Hægt er að nota „Dual Watch takkann ef verið er að hlusta á aðrar rásir.
Þá þarf að muna eftir að virkja rás 16 eftir samtal á öðrum rásum.
Berum virðingu fyrir félögum okkar og vinum og óskum þess að þeir geri það sama.
FullSizeRender (2).jpg