Mikið var um dýrðir á Drangsnesi í gær þegar feðgarnir Haraldur Ingólfsson og Ingólfur komu til hafnar á Skúla ST 75. Á bryggjunni beið þeirra vösk sveit með Má Ólafsson stjórnarmann í Landssambandi smábátaeigenda og Smábátafélaginu Ströndum í broddi fylkingar. Tilefnið var að afhenda Ingólfi verðlaun fyrir besta myndefnið á Facebook síðu MATÍS og LS. Verðlaunin voru ekki af verri endanum – GoPro myndavél að fullkomnustu gerð.
Fv. Ingólfur Haraldsson, Haraldur Ingólfsson, Már Ólafsson
Auk verðlauna fékk Ingólfur afhent sérstakt viðurkenningarskjal fyrir þátttöku sína í „Fallegur Fiskur.
„Með þessari viðurkenningu viljum við auka vitund um mikilvægi góðrar aflameðferðar og hversu miklu máli það skiptir að stunda vönduð vinnubrögð.
Matís og Landssamband smábátaeigenda.
Í frásögn á Facebook – „Fallegur Fiskur eru myndir af útbúnaði sem bætt hefur aflameðferð um borð í Skúla ST 75 og skilað útgerð, áhöfn og vinnslu 10% hærra afurðarverði.
Sendið myndefni
Nú stendur yfir skoðun á myndefni sem borist hefur í júní. Smábátaeigendur eru hvattir til að taka upp lífið á sjónum. Myndir sem sýna réttu handtökin við meðhöndlun aflans og það sem menn vilja að komi fyrir sjónir almennings og hefur skemmtana- og fróðleiksgildi.
Það fer vel merki LS á Skúla ST 75.
Hafið samband við skrifstofu LS og pantið merki.
Það er til í 3 stærðum og er selt á kostnaðarverði.