Einir, Gunna Beta, Hulda, Katrín

 
 
 
Að loknum tveimur mánuðum strandveiða 2016 liggur fyrir hvaða bátar hafa aflað mest á hverju svæði fyrir sig.
 
 
C: Einir SU 7         22.060 kg 31 róður
B: Gunna Beta ÍS 19.714 kg         25 róðrar
D: Hulda SF                 17.925 kg 21 róður
A: Katrín SH          13.866 kg 17 róðrar
 
 
 
 
Besta aflaárið
 
Ánægjulegt er að sjá samantekt áranna 2010 – 2016 á afla í hverjum róðri.  Í ár eru þar hæstu tölur í maí 601 kg og júní gaf 590 kg í hverjum róðri.  Slakasta fiskiríið á þessu tímabili var 2013, 469 kg í maí og 504 kg í júní.  
 
 
 
 
Afli uppfærður daglega
 
Alls voru 424 strandveiðibátar á sjó í gær, 4. júlí.  Dagsaflinn var sá mesti á frá því veiðar hófust 2. maí sl. 300 tonn.