Breytingar hafa verið gerðar á reglugerð um línuívilnun fyrir fiskveiðiárið 2016/2017. Í henni kemur fram að þremur fisktegundum hefur verið bætt inn og eru það keila, langa og karfi.
Línuívilnun í þorski verður 3.375 tonn í ýsu 1.355 tonn og 700 tonn í steinbít á fiskveiðiárinu.
Á fiskveiðiárinu sem er að ljúka er línuívilnun í þorski 3.500 tonn, 1.425 í ýsu og 775 í steinbít.
Ónýtt línuívilnun í dag er um 260 tonn í þorski, 260 í ýsu og 170 í steinbít. Sjá hér.
Nýju tegundirnar í línuívilnunni verða keila 60 tonn, langa 170 tonn og karfi 40 tonn.
Eins og áður er línuívilnunni skipt á fjögur þriggja mánaða tímabil.
Sjá reglugerð