Aðalfundir svæðisfélaga LS standa nú sem hæst. Í hönd fer mikil fundarhrina sem hefst með tveimur fundum á Sauðárkróki – Skalli og Drangey. Laugardaginn 24. september verður aðalfundur Kletts, Fontur er með sinn fund á Þórshöfn degi síðar.
Skalli
Aðalfundur Skalla er á morgun föstudag á Sauðárkróki – Kaffi Krók – hann hefst kl 13:00.Formaður Skalla er Steinn Rögnvaldsson
Drangey – smábátafélag Skagafjarðar
Aðalfundur Drangeyjar er á morgun föstudag á Bláfelli Sauðárkróki – hann hefst kl 17:00.Formaður Drangeyjar er Steinar Skarphéðinsson
Klettur
Klettur (Ólafsfjörður – Tjörnes) er með fund á Akureyri. Fundurinn verður nk. laugardag 24. september. Fundarstaður er Strikið Skipagötu 14 og hefst aðalfundur Kletts kl 16:00.Formaður Kletts er Óttar Már Ingvason
Fontur
Aðalfundur Fonts verður á Þórshöfn, veitingastaðnum Bárunni, sunnudaginn 25. september og hefst kl 12:00Formaður Fonts er Oddur Vilhelm Jóhannsson
Félagar sýnið samstöðu og fjölmennið á fundina. Halldór og Örn mæta með nýjustu tíðindi af málefnum smábátaútgerðarinnar.