Aðalfundir þriggja svæðisfélaga eru á næsta leiti. Félag smábátaeigenda á Austurlandi á morgun mánudag, Hrollaugur að venju þann 27. september og Farsæll í Vestmannaeyjum á nk. miðvikudag 28. september.
Félag smábátaeigenda á Austurlandi
Aðalfundur Félags smábátaeigenda verður á Icelandair Hótel Héraði Egilsstöðum á mánudaginn 26. september. Fundurinn hefst kl 18:00. Austurland aðalfundur.pdf
Ólafur Hallgrímsson er formaður Félags smábátaeigenda á Austurlandi
Hrollaugur
Aðalfundur Hrollaugs verður á Z BISTRO þriðjudaginn 27. september (áður Víkin). Fundurinn hefst kl 15:00.
Elvar Örn Unnsteinsson er formaður Hrollaugs
Farsæll
Aðalfundur Farsæls í Vestmannaeyjum verður miðvikudaginn 28. september.
Fundarstaður er SJÓVÉ og hefst fundurinn kl 13.00.
Jóel Andersen er formaður Farsæls
Halldór og Örn mæta á alla fundina.
Svara fyrispurnum og greina frá því
helsta sem brennur á smábátaeigendum.