Lokahrina aðalfunda svæðisfélaga LS fer í hönd. Sæljón á Akranesi, Farsæll í Vestmannaeyjum, Báran í Hafnarfirði og Reykjanes halda fundi nú í lok vikunnar.
Sæljón
Aðalfundur Sæljóns á Akranesi verður í Brekkbæjarskóla fimmtudaginn 29. september og hefst kl 20:00.
Rögnvaldur Einarsson er forsvarsmaður Sæljóns
Farsæll
Aðalfundur Farsæls í Vestmannaeyjum verður föstudaginn 30. september. Fundarstaður er SJÓVÉ og hefst fundurinn kl 16:00.
Jóel Andersen er formaður Farsæls
Báran
Aðalfundur Bárunnar í Hafnarfirði og Garðabæ verður laugardaginn 1. október á Hótel Víking Hafnarfirði (á móti Fjörukránni). Fundurinn hefst kl 12:00.
Léttur hádegisverður í boði félagsins.
Jón B. Höskuldsson er formaður Bárunnar.
Reykjanes
Aðalfundur Smábátafélags Reykjaness verður haldinn í Salthúsinu í Grindavík laugardaginn 1. október. Fundurinn hefst kl 17:00.
Kvöldverður í boði félagsins.
Þorlákur Halldórsson er formaður Reykjaness.