Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda er nú haldinn í aðdraganda kosninga. Það er í fyrsta skipti sem sú staða kemur upp sem gefur smábátaeigendum tækifæri til að nota fundinn til að þrýsta á um afstöðu stjórnmálamanna til málefna smábátaeigenda.
Sérstakur liður er á dagskrá fundarins varðandi þennan þátt.
Ályktanir aðalfunda svæðisfélaga LS hafa verið að berast til skrifstofunnar á undanförnum dögum. Eins og venja er eru þær aðgengilegar hér á heimasíðunni. Vinstra megin í kassa merktum „Aðalfundur 2016. Þar verða einnig nauðsynlegar upplýsingar sem tengjast fundinum.
LS merkir mikinn áhuga fyrir fundinum þegar tekið er mið af skráningu áheyrnarfulltrúa og heimsóknum á heimasíðu. Ítrekað er að aðalfundurinn er opinn öllum smábátaeigendum innan vébanda LS.
Rétt til setu á aðalfundinum með fullréttind hafa:
Stjórn LSKjörnir fulltrúar svæðisfélaga 36 talsinsFramkvæmdastjóri LS
Myndin hér að neðan sýnir skiptingu fulltrúa og fjölda báta.