Að loknum aðalfundi LS er það venja að nýkjörinn stjórn komi saman til fundar. Fastur dagskrárliður á þeim fundi er kosning varaformanns.
Á fundinum baðst Þorvaldur Garðarsson undan endurkjöri en hann hefur verið varaformaður LS í 6 ár. Fyrst tímabilið 2004 – 2007 og sl 3 ár 2013 – 2016. Hér með er Þorvaldi þakkað fyrir störf sín sem varaformaður Landssambands smábátaeigenda.
Tveir stjórnarmenn gáfu kost á sér til embættis varaformanns. Vigfús Ásbjörnsson Hrollaugi og Þorlákur Halldórsson Reykjanesi.
Varaformaður LS var kosinn Þorlákur Halldórsson úr Grindavík.