Í aðdraganda verkfalls sjómanna gætti misræmis í túlkun hjá Landssambandi smábátaeigenda og Sjómannasambands Íslands um hverja fyrirhugað verkfall næði til.
Landssamband smábátaeigenda leitaði vegna þessa til Láru V. Júlíusdóttur hrl. þar sem óskað var álits hennar á gildissviði deilunnar. Niðurstaða LVJ sbr. bréf dagsett 26. október sl. er að verkfallið nái ekki til sjómanna sem starfa hjá smábátaeigendum sem eru félagsmenn í LS.
Vangaveltur hafa verið um hvort útgerðarmenn smábáta geti komist hjá verkfalli með því að gerast félagsmenn í Landssambandi smábátaeigenda. LS er umhugað um að blanda sér ekki í þessa erfiðu deilu. Stjórn LS samþykkti þann 8. nóvember sl. eftirfarandi yfirlýsingu sem ákveðið var, kæmi til verkfalls, að birta í dag þann 11. nóvember:
LS er samband félaga og svæðisfélaga smábátaeigenda.Tilgangur þess er að tryggja sameiginlega hagsmuni smábátaeigenda á öllum sviðum, vera opinber málsvariþeirra og stuðla að framförum á sviði fiskveiða, vöruvöndunar, öryggis- og tryggingamála og annarra mála er þá varða.Á þeim tíma sem verkfall stendur yfir mun Landssamband smábátaeigenda ekki samþykkja umsóknir um félagsaðild.Yfirlýsingu þessari er ætlað að koma í veg fyrir að LSblandist inn í þessa erfiðu deilu og er einnig ætlað aðverða til þess að lausn finnist sem fyrst.














