Sjómenn felldu samninginn

Niðurstaða liggur fyrir í atkvæðagreiðslu um samning kjarasamning Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.   Á kjörskrá voru 1.098 sjómenn og af þeim kusu 743 eða 67,7%.
Já sögðu 177 eða 23,82% af þeim sem kusu.
Nei sögðu 562 eða 75,64%
Auðir seðlar voru 4
Samkvæmt þessari niðurstöðu hefst verkfall kl 20:00 í kvöld – 14. desember.
Sama niðurstaða varð hjá sjómönnum í Sjómanna- og Vélstjórafélagi Grindavíkur þar sem 90% þeirra sem kusu sögðu nei og Sjómannafélags Íslands sem felldi samninginn með 86% greiddra atkvæða.
Það skal áréttað hér að verkfallið nær ekki til sjómanna sem starfa hjá smábátaeigendum sem eru félagsmenn í LS, skiptir þá engu máli hvort báturinn er styttri eða lengri en 12 metrar eða minni eða stærri en 15 brt.
Niðurstaða Láru V. Júlíusdóttur hrl. er skýr er það varðar:
logo_LSx á vef.jpg