Stefnuyfirlýsing nýrrar ríkisstjórnar

Ríkisstjórnarskipti verða á morgun 11. janúar.  Þá tekur við stjórn landsins ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar hefur verið birt.  Þar segir eftirfarandi um sjávarútveg:
Núgildandi fiskveiðistjórnarkerfi hefur skilað miklum þjóðhagslegum ávinningi. Mikil hagræðing hefur átt sér stað í sjávarútvegi um leið og tekist hefur að tryggja sjálfbærni fiskveiða á Íslandsmiðum. Þá hefur öryggi sjómanna aukist til muna.   Ríkisstjórnin telur kosti aflamarkskerfisins mikilvæga fyrir áframhaldandi verðmætasköpun í sjávarútvegi. 

Kannaðir verða kostir þess að í stað ótímabundinnar úthlutunar verði byggt á langtímasamningum og samhliða verði unnið að mati á þeim kostum sem tækir eru, svo sem markaðstengingu, sérstöku afkomutengdu gjaldi eða öðrum leiðum, til að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind verði í eðlilegu hlutfalli við afrakstur veiðanna. Gæta þarf að langtímarekstraröryggi í greininni og stöðugleika í byggðum.