Þorgerður Katrín tekur við embætti

Landssamband smábátaeigenda óskar Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur til hamingju með embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og velfarnaðar í starfi.  
Þorgerður Katrín er þingmaður Viðreisnar í SV-kjördæmi. 
Samtímis og nýr ráðherra er boðinn velkominn þakkar Landssamband smábátaeigenda fráfarandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Gunnari Braga Sveinssyni fyrir samstarfið.