Þorskur í verkfalli

Það sem af er ári er búið að selja meira af óslægðum þorski á fiskmörkuðunum 
en á sama tíma í fyrra.  Þetta vekur athygli þegar tillit er tekið til verkfalls sjómanna.  Alls nemur aukningin 288 tonnum sem jafngildir 17,5%. 
  
Hrun hefur hins vegar átt sér stað í slægðum þorski, nær ekki fimmtungi þess sem selt hafði verið í fyrra eða alls 487 tonna mismunur.  Þegar litið er til heildarmagns er munurinn því aðeins 200 tonn síðasta ári í vil.
Verð á óslægðum þorski er aðeins 4% hærra en það var í fyrra.  Þegar kílóverð hans er umreiknað í gjaldmiðla okkar helstu viðskiptalanda eru hækkanir verulegar milli ára.  
USD 19% 
GBP 41%
EUR 22%
Tímabilið 1. janúar – 19. janúar

Screen Shot 2017-01-19 at 20.09.40 (1).jpg