Í nokkurn tíma hafa Fiskistofa og LS rætt um að efna til samráðsfunda sín á milli. Af þessu samstarfi varð í dag. Markmiðið er að miðla upplýsingum milli aðila um stjórn fiskveiða og ræða þau atriði sem upp hafa komið og betur mega fara.
Meðal þeirra málefna sem rædd voru á fundinum í dag voru:
• Grásleppuveiðar – upphaf og lok veiða, mælingar á lengd neta og mikilvægi þess að skrá
allan meðafla þar með talið sjávarspendýr og fugla.
• Strandveiðar – aðferðir til að koma í veg fyrir að afli fari umfram dagsskammtinn,
sambandsleysi við AIS, viðurlög við brotum.
• Afstemmingu aflatalna af vigtarskýrslum og aflaskráningarkerfi Fiskistofu GAFLI.
• Að upplýsingar sem sendar eru í pósti færist yfir í rafrænar sendingar.
Upptalningin hér að framan er ekki tæmandi.
Í lok fundar lýstu báðir aðilar yfir ánægju þennan fyrst samráðsfund og var ákveðið að framhald verði á.