Þorskaflinn yfir 250 þús. tonn

 
 
Á síðasta ári fór þorskafli á Íslandsmiðum í fyrsta skiptið á þessari öld yfir 250 þúsund tonn.  Alls veiddust 250.368 tonn.  Liðin eru 16 ár frá því meira veiddist, en 1999 skilaði 259.209 tonn.
 
 
Á grafinu má sjá þróunina síðastliðna tvo áratugi.   Meðaltalið er 207.555 tonn, minnst veiddist árið 2008 aðeins 144.332 tonn, en mestur var aflinn 1999.
 
 
 
 
 
 
Heimild:  Fiskistofa