Frétt hér síðunni í gær um að loðnan væri komin austur í Héraðsflóa vakti verðskuldaða athygli.
Hér er mynd af dýptarmælinum í Eydísi NS-320 sem sýnir hvernig lóðaði á loðnuna hjá bátum á Borgarfirði þann 13. febrúar 2017.
Að sögn Ólafs Hallgrímssonar skipstjóra flæðir loðnan nú yfir og er mikið um veisluhöld í kringum hana, allt iðandi af lífi. Þar er hnísa einna mest áberandi.