Engin krónuhækkun á óslægðum þorski

LS hefur tekið saman sölutölur á fiskmörkuðunum – magn og verð – á þorski og ýsu.  Tímabilið sem skoðað var nær frá áramótum til dagsins í dag, 15. febrúar.   Til að fá betri yfirsýn er samanburður við sama tímabil í fyrra.
Meira selt af óslægðum þorski

Screen Shot 2017-02-15 at 21.44.00.jpg

Það hlýtur að vekja undrun að meira magn af óslægðum þorski 
hefur farið í gegnum markaðina nú í verkfallinu heldur en í fyrra þegar öll skip voru á sjó.  Mismunurinn telur 1.342 tonn, rúmlega þriðjungs aukning.   Kílóverð er nánast óbreytt milli ára eins og sést hér í töflunni.
Screen Shot 2017-02-15 at 21.44.26.jpg
Sömu sögu er að segja af ýsunni þó magnaukning þar sé ekki jafn mikil eða 18%.  Verð í ár er hins vegar rúmlega 4% hærra.
Til hliðsjónar þessum upplýsingum er graf sem sýnir meðalgengi USD, GBP og EUR.  Við útreikning til þessara mynta er ljóst að verð hefur hækkað verulega milli ára.  Mest er hún í GBP 31%.  Það er vonandi að hægt verði að viðhalda þessum verðum og bæta frekar í þegar deila sjómanna og útvegsmanna leysist.
Screen Shot 2017-02-15 at 22.00.51.png