Makrílveiðar í brennidepli hjá LS

Á fundi stjórnar LS þann 17. febrúar sl. er þess krafiist að sjávarútvegsráðherra afnemi nú þegar ákvæði reglugerðar um kvótasetningu smábáta í makríl.  Ennfremur að ráðherra tryggi smábátum 16% hlut í árlegum heildarafla í makríl.
Ályktun um makrílveiðar 2017.
Stjórn Landssambands smábátaeigenda krefst þess að sjávarútvegsráðherra nemi ákvæði reglugerðar um kvótasetningu smábáta á makríl nú þegar úr gildi.  

Reglugerðin var sett í óþökk smábátaeigenda og þorra landsmanna sem skoraði á forseta Íslands að samþykkja ekki lög frá Alþingi um hlutdeildarsetningu á makríl.  Ekki kom til þess þar sem ráðherra dró frumvarpið til baka.  Hins vegar ákvað hann kvótasetningu sem staðfest var með ákvæði í reglugerð.  Ákvæði sem þjóð og þing voru andvíg.  Andstaðan birtist m.a. í undirskriftum um 54 þúsund Íslendinga gegn frumvarpinu.

Stjórn Landssambands smábátaeigenda setur traust sitt á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að hún afnemi ákvæðið nú þegar og tryggi smábátum 16% hlut í árlegum heildarafla í makríl.   Ekki verði takmarkanir á veiðum þeirra fyrr en þessari hlutdeild er náð.


Samþykkt 17. febrúar 2017
Stjórn Landssambands smábátaeigenda

Makríll Emilía.jpg