Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókn á orsökum þess að Jón Hákon BA sökk þann 7. júlí 2015. Skýrsla nefndarinnar er mikil að vöxtum þar sem bent er á fjölmörg atriði sem vert er að gefa gaum að.
Í lögum um rannsókn samgönguslysa segir:
„Rannsókn samkvæmt lögum nr 18/2013 skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og amgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa. Skýrslum rannsóknarnefndar um rannsókn einstakra slysa og atvika skal ekki beitt sem sönnnunargögnum í dómsmálum