Grásleppuvertíðin hefst nk. mánudag 20. mars. Kl. 08:00 að morgni verður heimilt að leggja netin á fjórum veiðisvæðum: D, E, F og G þ.e. frá Horni austur eftir Norðulandi, á Austurlandi og suður og vestur að Garðskaga.
Að gefnu tilefni er rétt að taka fram að til að veiðileyfi verði gilt á fyrsta degi vertíðarinnar þann 20. mars, verður greiðsla fyrir veiðileyfi að hafa farið fram fyrir kl 21:00 á morgun föstudaginn 17. mars.
Áríðandi tilkynning frá Fiskistofu
Bilun í Ugga – Þeir sem sóttu um grásleppuveiðileyfi eftir kl. 13:00 í gær (15. mars) til kl. 9:00 í morgun (16. mars) þurfa að sækja um veiðileyfi að nýju vegna bilunar í UGGA.