Samkomulag milli LS og Varðar

Landssamband smábátaeigenda og Vörður tryggingar undirrituðu nýverið samkomulag um sérstök kjör á tryggingum til félagsmanna í LS.
vordur_logo_1a.jpg
Hér er um endurnýjun á fyrri samningi sem orðinn var barn síns tíma.
Nýi samningurinn tryggir smábátaeigendum góð kjör á öllum sínum tryggingum.  Ná þær jafnt til útgerðarinnar og þess sem viðkomandi félagsmaður kýs að tryggja.
Félagsmönnum býðst að greiða iðgjöld tengd útgerðinni í gegnum greiðslumiðlun LS eins og góð reynsla hefur verið á undanfarna áratugi.
Til að njóta þessara góðu kjara sem samningurinn býður uppá þarf að fylla út eyðublað og fá sent tilboð. 
IMG_3598.jpgMyndin er tekin þegar formaður LS Axel Helgason og Valtýr Guðmundsson framkvæmdastjóri Varðar undirrituðu samkomlagið.   Að baki þeim standa Sigmundur Einar Másson og Örn Pálsson
Mynd af logo LS.png