LS leggur til 36 daga

Grásleppuveiðar hófust 20. mars sl.  Tólf dagar eru því liðnir af vertíðinni hjá þeim sem hófu veiðar á fyrsta degi grásleppu.
Hafrannsóknastofnun lauk útreikningum úr mælingum rannsóknaleiðangurs sem fram fór í byrjun mars.  Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu hefur nú til skoðunar bréf stofnunarinnar þar sem gerð er grein fyrir niðurstöðum mælinga á stærð veiðistofns grásleppu.  Hafrannsóknastofnun leggur til að grásleppuafli fari ekki umfram 6.355 tonn, sem er 445 tonnun minnkun milli ára. 
DSC_0236.jpg
Ráðuneytið óskaði eftir sjónarmiðum LS á tillögum Hafró.  Félagið hefur svarað erindinu þar sem lagt er til að veiðidagar á yfirstandandi grásleppuvertíð verði 36 sem er 4 daga viðbót við veiðitíma í fyrra.  Í rökstuðningi LS er meðal annars bent á eftirfarandi:
    • Færri stunda veiðar nú en í fyrra
    • Samdráttur í veiðum milli ára
    • Lakari útbreiðsla á gjöfulum veiðisvæðum
    • Markaðslegar aðstæður
Búast má við að ráðuneytið tilkynni um fjölda veiðidaga eftir helgi.