Fiskistofa hefur tilkynnt að strandveiðar verði óheimilar á svæði A frá og með 23. maí til mánaðamóta. Veiðidagar í maí á svæðinu verða því alls 13 í ár eða þremur fleiri en í fyrra.
Að loknum veiðum sl. fimmtudag var staðan þessi:
Auglýsing þessa efnis hefur verið birt í stjórnartíðindum.
Að loknum 11. degi strandveiða á svæði A voru 157 tonn óveidd af 852 tonna leyfilegum afla. 191 bátur hefur hafið veiðar á svæðinu. Mestur afli var mánudaginn 8. maí 109 tonn. Hér að neðan má sjá dreifingu aflans eftir dögum.