Byggðakvótinn til endurskoðunar

Sjávarútvegsráðherra skipaði þann 18. apríl sl. fjóra aðila í starfshóp sem ætlað er að skoða löggjöf og framkvæmd byggðakvótans.  Þar er einkum horft til byggðafestuáhrifa og hvernig hægt er að hámarka nýtingu þess hluta 5,3% sem dregið er frá heildarafla og fer í byggðakvóta.  Þar undir er jafnt almenni byggðakvótinn og sértækur byggðakvóta Byggðastofnunar.  
Hópnum er gert skilia áfangaskýrslu til ráðherra fyrir 1. júní nk. og ljúka störfum fyrir 7. júlí 2017.
Formaður starfshópsins er Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri og fyrrverandi formaður stjórnar Byggðastofnunar.  Aðrir í hópnum eru:
Guðmundur Kristján Jónsson aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Kristján Torfi Einarsson sjómaður Flateyri og fulltrúi Eldingar í stjórn LS 
Hinrik Greipsson Sjávarútvegsráðuneytinu, sérfræðingur á sviði fiskveiðistjórnunar
Byggðakvótinn er mikið hagsmunamál fyrir smábátaeigendur og hefur hann verið margræddur á fundum þeirra og aðalfundi Landssambands smábátaeigenda.  LS leggur áherslu á að allar heimildir til byggðakvóta verði nýttar af dagróðrabátum og honum úthlutað líkt og línuívilnun með veiðum viðkomandi.
Samþykkt aðalfundar LS þann 14. október 2016:

„Aðalfundur LS skorar á stjórnvöld að breyta

fyrirkomulagi byggðakvóta þannig að hann verði

nýttur af dagróðrabátum og úthlutað við löndun

sem ívilnun á kvóta.