Stöðvun strandveiða á svæði A

 
 
Fiskistofa hefur tilkynnt að strandveiðar verði óheimilar á svæði A frá og með 21. júní til mánaðamóta.  Veiðidagar í maí á svæðinu verða því alls 10, sem er þremur dögum fleira en í júní í fyrra.  
 
 
Að loknum veiðum í síðustu viku var staðan þessi:
 
 
 
Auglýsing um stöðvun veiða.
 
 
 
Á þeim átta veiðidögum sem búnir eru var mesti aflinn þriðjudaginn 13. júní 128 tonn.
 
Alls hafa 214 bátar verið á veiðum á svæði A, sem er 14 færri en í fyrra.