Byggðakvóti verði nýttur af dagróðrabátum

Nýverið átti LS fund með ráðherraskipuðum starfshópi sem fékk það verkefni að skoða löggjöf og framkvæmd byggðakvótans.  Á fundinum voru fjölmargt sem LS ræddi við nefndina.  
Meðal þess var:
      • Verðlagning afla
      • Samningar – staða seljenda
      • Greiðslutryggingar
      • Fækkun vinnsluaðila
      • Krafa um aukna sérhæfingu
LS lagði áherslu á að: 
      • heimildir til byggðakvóta yrðu skilyrtar til sveitarfélaga samkvæmt reglum sem mótaðar hafa verið.
  
      • réttur til nýtingar væri hjá útgerðum sem skráðar væru í viðkomandi byggðarlagi og bátar í þeirra eigu sem skráðir eru með heimahöfn í byggðarlaginu og stunda dagróðra þaðan, enda hafi viðkomandi uppfyllt framangreint á næstliðnu fiskveiðiári. 
Varðandi úthlutun eru tillögur LS þessar:
      • Með ívilnun á aflaheimildir við löndun með sambærilegum hætti og gildir um línuívilnun
      • 10 tonnum úthlutað í upphafi hvers fiskveiðiárs til útgerða þar sem eigandinn hefur átt heimilisfesti í byggðarlaginu sl. 10 ár.
Sala aflans
  • Fiskvinnsla í viðkomandi byggðarlagi hefur forkaupsrétt af afla þeirra báta sem njóta byggðaívilnunar. 
  • Greitt verði meðaltalsverð sem fæst á nærliggjandi fiskmörkuðum á löndunardegi
  • Greiðslufyrirkomulag og greiðslutrygging verði með sama hætti og hjá aðilum sem kaupa af fiskmörkuðum.
  • Þar sem ekki er fiskvinnsla skal aflinn boðinn upp á fiskmarkaði.
Starfshópnum er ætlað að skila lokaniðurstöðum eigi síðar en 6. júlí nk.