Strandveiðar 2017 hálfnaðar

Að loknum strandveiðum í maí og júní er nærtækt að fara yfir stöðuna og bera saman við sl. ár.  
Bátum sem stunda strandveiðar hefur fækkað milli ára um 68.  Nú hafa 560 bátar landað afla á móti 628 í fyrra.  Heildarafli hefur einnig minnkað úr 5.178 tonnum í 4.607 sem búið var að veiða nú um mánaðarmótin.
Vegna fækkunar báta hafa dagarnir enst betur, aðeins á svæði A hefur þurft að stöðva veiðar vegna þess að viðmiðun var náð.  Þar eru veiðidagar þó sex fleiri en í fyrra eða 23; 13 í maí og 10 í júní.
Afli á hvern bát er óbreyttur frá í fyrra 8,2 tonn að meðaltali.  Mestur á svæði D 9,1 tonn, þar sem hann jókst um 2,2 tonn á milli ára.   Hver sjóferð gaf 603 kg að meðaltali allra svæð, en var 596 kg í fyrra.  
Screen Shot 2017-07-04 at 15.30.07.png