Var það sem fór í gegnum huga Eðvalds Smára Ragnarssonar á Djúpavogi þegar hann var á leiðinni niður á bryggju kl þrjú að nóttu til að fara í strandveiðiróður á bát sínum Orra SU. Já hvaða rugl er þetta að þvæla sér út á sjó um hánóttu til að ná að selja á markaðinum úrvals þorsk. Blóðgaður, lagður í ískrapa og hitamældur. Ruglið felst í afrakstri róðursins, fékk 146 krónur fyrir hvert kíló. Þennan dag í fyrra var verðið 270 krónur, sagði Eðvald Smári.
Aðspurður sagðist Eðvald vera sár og svekktur yfir verðinu. Það væri ábyrgðarhluti að selja þorsk á erlendan markað á svo lágu verði, að ekki sé hægt að greiða meira til sjómannsins en 146 krónur.
Það er ekki einkamál fiskkaupenda ef þeir væru að miðla þjóðargullinu inn á dýrustu markaði heims með þessum hætti. Allir sem kæmu að ferlinu ættu rétt á að fá sanngjarna greiðslu fyrir sína vinnu.
Það eru gríðarleg vonbrigði hversu fiskverð er lágt um þessar mundir. Meðalverð á mörkuðum fyrir óslægðan þorsk tímabilið maí – júní var aðeins 203 krónur, sem er 64 krónum lægra en það var í sömu mánuðum í fyrra. Öll plön um þokkalega afkomu af veiðunum hafa því fokið út í veður og vind. Hver þróunin verður á seinni helmingi strandveiðitímabilsins skal ósagt látið.
Orri SU á leiði í land
Fyrsti dagur strandveiða í júlí lofar hins vegar ekki góðu. 240 tonn seld, sem 47 kaupendur fengu á gjafverði, greiddu að meðaltali 150 kr/kg.
Taflan sýnir niðurstöðu uppboðsins.
|
|
|
|
|
|
Selt í
uppboðssölu á fiskmörkuðum.
|
|
|
3. júlí 2017
|
|
|
Þorskur –
óslægður – handfæri
|
|
|
|
|
|
|
|
Stærð
|
Magn
|
Verð
|
|
|
Mþ Bl.stór
3,5-5
|
69.729 Kg
|
140 Kr/kg
|
|
|
Mþ
Bl.góður 2,7-3,5
|
53.241 Kg
|
119 Kr/kg
|
|
|
5+
|
21.990 Kg
|
187 Kr/kg
|
|
|
Vélflokkað
4,0 – 8,0 kg
|
19.432 Kg
|
191 Kr/kg
|
|
|
Vélflokkað
2,0-4-0 kg
|
18.907 Kg
|
145 Kr/kg
|
|
|
8+
|
12.812 Kg
|
213 Kr/kg
|
|
|
Stór
>5kg
|
9.376 Kg
|
172 Kr/kg
|
|
|
Mþ
Blandaður 2,0-2,7
|
8.539 Kg
|
107 Kr/kg
|
|
|
Vélflokkað
0-2,0 kg
|
7.471 Kg
|
117 Kr/kg
|
|
|
Vélflokkað
8+ kg
|
6.733 Kg
|
225 Kr/kg
|
|
|
Mþ Bl.smár
1,7-2,0
|
3.366 Kg
|
89 Kr/kg
|
|
|
7+
|
2.791 Kg
|
196 Kr/kg
|
|
|
Mþ Smár
1,3-1,7
|
2.634 Kg
|
119 Kr/kg
|
|
|
Vélflokkað
2,0-4-7 kg
|
1.650 Kg
|
145 Kr/kg
|
|
|
6+
|
804 Kg
|
186 Kr/kg
|
|
|
Vélflokkað
2,7-2-0 kg
|
760 Kg
|
135 Kr/kg
|
|
|
Vélflokkað
1,0-2-2 kg
|
108 Kg
|
111 Kr/kg
|
|
|
Vélflokkað
0-1,2 kg
|
26 Kg
|
86 Kr/kg
|
|
|
Samtals og Meðaltal:
|
240.369 Kg
|
150 Kr/kg
|
|
|
|
|
|
|
Þegar kaupendur eru spurðir hvað veldur þessu lága verði er samstundis svarað – krónan er að drepa okkur, allt of sterk.
Samkvæmt athugun sem LS gerði er það varla nema hálf skýringin. Þegar tekið er mið af kaupgengi gjaldmiðla í helstu viðskiptalöndum okkar, evru, sterlingspundi og Bandaríkjadollar, er það vissulega lægra en í fyrra. Munurinn er hins vegar langt frá því að vera í takt við lækkun fiskverðsins.
|
4. júlí 2016
|
3. júlí 2017
|
Fiskverð
|
280 kr/kg
|
150 kr/kg
|
$ USD
|
122,35
|
102,07
|
£ GBP
|
162,58
|
132,33
|
€ EUR
|
136,14
|
116,05
|