Makrílaflinn kominn yfir þúsund tonn

Alls eru 30 smábátar byrjaðir veiðar á makríl.  Aflastaðan í morgun var 1.058 tonn, þar af 902 tonn úr aflareynslupottinum.
Helmingur þeirra sem byrjaðir eru veiðar eru komnir með yfir 30 tonn.  
Megnið af aflanum hefur veiðst við Reykjanesið aðallega í og útaf Keflavík.  Aðrir veiðistaðir eru við Snæfellsnes og í Steingrímsfirði.
Makríllinn er vandveiddur.  Einn daginn gefur hann sig það vel að bátarnir fylla sig hver á fætur öðrum, en aðra dagar lætur hann ekki sjá sig.
Alls eru aflaheimildir smábáta á vertíðinni rúm 9.000 tonn.  Í aflareynslupottinum um 7.000 tonn og rúm 2.000 tonn til úthlutunar aukalega ásamt því sem flutt var milli ára.  
 
IMG_5603_2.jpg