Hagstofan hefur sent frá sér talnaefni um afla á Íslandsmiðum í júlí og 12 mánaða samantekt ágúst 2016 – júlí 2017.
Þegar skoðaðar eru tölur fyrstu 7 mánuði ársins og þær bornar saman við sama tímabil í fyrra sést vel hversu gríðarleg áhrif verkfallið hefur haft.
Afli dregst saman í öllum helstu botnfisktegundunum:
- Þorskur minnkar um 20 þúsund tonn milli ára (-12,6%)
- ýsa um 3 þúsund tonn (-13,1%)
- ufsi um 5 þúsund tonn (-15,2%)
- karfi um 8 þúsund tonn (-21,5%)
- steinbítur rúm 900 tonn (-13,0%)
Heildarafli í þessum fimm tegundum nú var rúm 220 þúsund tonn, sem er 37 þúsund tonnum minna en á sama tímabil í fyrra (-14,3%).
Áhugavert er einnig að skoða 12 mánaða tímabil – ágúst 2016 – júlí 2017 og bera saman við árið á undan.
Samanlagður afli í þorski, ýsu, ufsa, karfa og steinbít var 388 þúsund tonn sem er um 33 þúsund tonna minna (-7,7%) en ágúst 2015 – júlí 2016. Mestur var samdrátturinn í þorski rúm 14 þúsund tonn (-5,6%) og karfa um 8 þúsund tonn (-12,3%).