Færabátar að nálgast 3.000 tonn

Alls hafa 49 færabátar landað makríl það sem af er vertíð.  Eins og komið hefur fram er veiðin afar gloppótt.  Einn daginn hörkugóð veiði, en sést ekki næsta dag þó menn hafi ekki merkt breytingu á aðstæðum.  Sannarlega krefjandi veiðar.
Þegar aflastaðan var tekin hjá Fiskistofu í upphafi dagsins höfðu 8 bátar landað yfir 100 tonnum. Heildaraflinn var kominn í 2.988 tonn.
Fyrirhugað er að uppfæra lista daglega hér á síðunni til að auðvelda lesendum að fylgjast með veiðunum frá degi til dags.   Blikka á MAKRÍLL

Screen Shot 2017-08-28 at 15.28.00.png

Myndin sýnir brot af listanum
Screen Shot 2017-08-28 at 15.15.27.png