Nú stendur yfir úttekt á stöðu strandveiða. Sjávarútvegsráðuneytið fól Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri verkefnið sem nú stendur
yfir.
Í bréfi sem útgerðir strandveiðibáta hafa fengið sent segir m.a. eftirfarandi:
„Í ljósi þess að meiri reynsla er komin á veiðarnar og breytingar hafa orðið í rekstri útgerðar á síðustu árum er mikilvægt að kanna stöðu strandveiða árið 2017.
LS hvetur strandveiðimenn að taka þátt í könnunni. Mikilvægt er að sem flestir svari til að marktæk niðurstaða fáist.
Eins og áður sagði stendur könnunin nú yfir og lýkur á miðnætti sunnudaginn 10. september.
Í könnunni geta smábátaeigendur komið á framfæri sjónarmiðum sínum um veiðarnar.
T.d. er spurt um álit viðkomandi um hvernig eigi að hafa veiðarnar á næstu árum.
- Hvort banndagar eigi að vera með öðrum hætti en á föstudögum, laugardögum og sunnudögum?
- Í hvaða mánuði veiðarnar eigi að hefjast?
- Hvað hægt er að gera til að þjóna byggðunum betur með strandveiðum?
Í samtali við aðila sem búinn er að svara könnunni sagðist hann binda vonir við hana til breytinga á kerfinu og vera kærkomið tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri. Hann sagðist t.d. hafa bent á leið til að fá meiri nýliðun í sjávarútvegi gegnum kerfið. Tillaga hans er að þeir sem hefðu með sér nýliða yngri en 20 ára fengju að auka skammtinn um t.d. 100 kg.