Íslenska sjávarútvegssýningin 2017 er haldin í Smáranum í Kópavogi. Sýningin í ár er sú 12. í röðinni, en hún var fyrst haldin 1984.
Sýningin stendur yfir næstu þrjá daga 13. – 15. september.
Opnunartímar:
Miðvikudagur 10:00 – 18:00
Fimmtudagur 10:00 – 18:00
Föstudagur 10:00 – 17:00
Landssamband smábátaeigenda er eins og á undanförnum sýningum stuðningsaðili Íslensku sjávarútvegssýningarinnar.
LS verður ekki með bás að þessu sinni, en félagið hefur verið beinn þátttakandi í undanförnum fjórum sýningum.