Aðalfundir Snæfells, Árborgar og Króks

Svæðisfélög LS undirbúa sig nú hvert af öðru fyrir aðalfundi félaganna.  Snæfell ríður á vaðið og hefur boðað félagsmenn sína til fundar í Grundarfirði nk. sunnudag 17. september.
Fundurinn verður haldinn á Kaffi Emil og hefst kl 16:00.
Snæfell er fjölmennast þeirra 16 svæðisfélaga sem mynda LS.  Alls 123 bátar í eigu félagsmanna.  
Á næstu vikum funda félögin hvert af öðru og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna á fundina og sína þannig styrk smábátaeigenda.  Mörg málefni brenna á félagsmönnum sem nauðsynlegt er að ræða og álykta um. 
Þar má nefna:
    • Veiðigjald – en hækkun um rúm 100% á þorski og ýsu kom til framkvæmda 1. september sl.
    • Viðbrögð við lágu fiskverði.
    • Strand-, makríl- og grásleppuveiðar.
    • Breytingar á lögum LS.
  
Árborg
Aðalfundur Árborgar verður haldinn í Rauða húsinu á Eyrarbakka nk. þriðjudag 19. september.  Fundurinn hefst kl 18:00.
Strandveiðifélagið KRÓKUR
Aðalfundur KRÓKS verður haldinn á Fosshótelinu á Patreksfirði laugardaginn 23. september.  Fundurinn hefst kl 14:00.