Á fundi hagsmunasamtaka útvegsmanna (SFS, LS) og sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM), sem haldinn var 2. október 2017, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
- Slægður þorskur hækkar um 10%
- Óslægður þorskur hækkar um 7,0%
- Slægð ýsa hækkar um 4,0%
- Óslægð ýsa helst óbreytt
- Karfi hækkar um 7,0%
- Ufsi hækkar um 3,2%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila.
Breytingin tók gildi 2. október 2017.
Sjá gildandi viðmiðunarverð
Sjá nánar á heimasíðu Verðlagsstofu skiptaverðs.