Aðalfundur Sæljóns var haldinn á Akranesi 21. september sl. Afargóð mæting var á fundinn og mikill hugur í fundarmönnum. Fundurinn tókst á við fjölmargar tillögur sem lá fyrir fundinum og samþykkti flestar þeirra sem ályktanir til 33. aðalfundar LS sem haldinn verður 19. og 20. október nk.

Meðal þeirra var:
Humarveiðar í gildrur samhliða þróun á veiðum, vinnslu og markaðsetningu grjótkrabba.
Aðalfundur Sæljóns, haldinn á Akranesi 21. september 2017, vill kanna möguleika þess að heimila humarveiðar í gildrur í Faxaflóa samhliða veiðileyfi á grjótkrabba.
Einnig skorar fundurinn á stjórnvöld að huga alvarlega að skaðsemi trollveiða á humri á lífríki sjávar.
Út frá rannsóknum á skaðsemi trollveiða liggur það í augum uppi að ekki verði hægt að bjóða náttúrunni upp á slíkar aðfarir til lengdar.
Humarveiðar í gildrur lágmarkar áhrif á lífríki hafsins og eykur nýtingu auðlindarinnar til muna.
Greinargerð
Grjótkrabbi er ný nytjategund innan veiðilögsögu Íslands og finnst hann nú í miklu magni í Faxaflóa. Ljóst er þó að löng og kostnaðarsöm þróunarvinna er framundan í veiðum, vinnslu og markaðssetningu á grjótkrabba áður en nýting á honum verði arðbær.Ómögulegt er fyrir smábátaeigendur að standa straum af kostnaði við slíka þróunarvinnu.Með því að heimila humarveiðar í gildrur upp að vissu marki samhliða veiðum á grjótkrabba væri hægt að dekka hluta þess kostnaðar og hvetja útgerðamenn til frekari þróunarvinnu við nýtingu á grjótkrabba sem í framtíðinni yrði sjálbærar og umhverfisvænar veiðar.
Sjá nánar ályktanir aðalfundar Sæljóns:
2017 Sæljón tillögur.pdf
Stjórn Sæljóns:
Jóhannes Simonsen formaður tv á mynd
Böðvar Ingvason meðstjórnandi
Guðmundur Elíasson meðstjórnandi
Guðmundur Páll Jónsson ritari th. á mynd
Rögnvaldur Einarsson gjaldkeri














