Viðbrögð LS – vigtun og brottkast

„LS brýnir fyrir sjómönnum, fiskvinnsluaðilum og öllum þeim sem starfa við sjávarútveg að vanda sig í allri umgengni um sameiginlega auðlind þjóðarinnar, er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu LS 
Yfirlýsing frá Landssambandi smábátaeigenda
Landssamband smábátaeigenda fordæmir þá dæmalausu umgengni um sjávarauðlindina sem fram kom í fréttaþættinum Kveik sem sýndur var í RÚV á Alþjóðadegi sjómanna 21. nóvember. 
LS brýnir fyrir sjómönnum, fiskvinnsluaðilum og öllum þeim sem starfa við sjávarútveg að vanda sig í allri umgengni um sameiginlega auðlind þjóðarinnar.  

LS þrýsti á fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um nauðsyn þess að breyta reglum um vigtun í byrjun árs 2014. Í umræðu á Alþingi 22. janúar það ár staðfesti hann að málið væri komið inn á þingmálalista yfirstandandi vorþings.  
Engar raunhæfar skýringar hafa verið gefnar hvers vegna frumvarp kom ekki fram.  Nægur þingmeirihluti var að baki ríkisstjórn á þessum tíma og ólíklegt að málefnið hefði mætt andstöðu þingsins.
Á öllum stigum þessa máls hefur LS lýst stuðningi við hugmyndir stjórnvalda um breytingar á reglum um vigtun.
Þau þrjú ár sem liðin eru án aðgerða hafa leitt til óheilbrigðrar samkeppnis-stöðu milli fyrirtækja og skaðað orðspor íslensks sjávarútvegs.   Enn fremur hefur aðgerðaleysið haft áhrif á kjarasamninga sjómanna.  
Landssamband smábátaeigenda ætlar fjórða valdinu að draga fram í dags-ljósið hver ber ábyrgð í þessu grafalvarlega máli sem á rætur sínar í slöku regluverki og ónógu eftirliti stofnunar sem stjórnvöld gerðu nánast óstarfhæfa með vanhugsaðri ákvörðun um staðsetningu.  
logo_LSxx á vef.jpg