Fiskistofa hefur tekið í notkun nýtt rafrænt millifærslukerfi sem tekur til aflamarks milli báta skyldra og óskyldra aðila. Líkja má aðgenginu við millifærslu af reikningi í gegnum heimabanka.
Fram til áramóta verður ekkert gjald innheimt fyrir þessa rafrænu þjónustu, frá þeim tíma tekur við gjald á hóflegum nótum.