Atlaga að útgerð smábáta

 
 
LS hefur sent Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bréf með athugasemdum við tillögu starfshóps ráðuneytisins um að allar núgildandi stærðar og vélarafls takmarkanir verði felldar úr gildi.
 
Athygli er vakin á að hér er um grafalvarlegt mál að ræða, nánast um aðför að útgerð smábáta ef af verður.   
 
Í bréfi LS segir m.a.:
 
„Niðurstaða hópsins eru LS mikil vonbrigði og telur félagið hana vega að framtíð smábátaútgerðar á landinu og veiðirétti þeirra.  Hópurinn hefur með tillögu sinni ákveðið að skeyta engu um þær reglur sem í gildi eru og verið einn af hornsteinum að útgerð smábáta.  Að skýrar reglur gildi um veiðar á grunnslóð, hvers konar skip geti sótt á hefðbundin veiðisvæði smábáta.  
 
Sátt hefur ríkt lög um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands þar sem haft er til hliðsjónar að stærð báta takmarki sókn þeirra á veiðislóðir fjær landi.  Þá er sérstaklega eftir því tekið að hópurinn undanskilur engar veiðar í tillögum sínum.  Þar með taldar eru grásleppuveiðar þar sem veiðistjórn hefur ávalt verið í sátt við náttúruna og skilað einstökum árangri.
 
 
Sjá bréfið í heild:   Frá LS – stærðartakmarkanir.pdf
 
 
Meðal tillagna starfshópsins sem komnar eru til framkvæmda er opnun fyrir dragnótveiðum í innanverðum Skagafirði og Eyrarbakkabugt.  Eins og sjá má á myndinni er vart hægt að komast nær landi.