Fyrirsögnin er fyrir grein sem birtist í Bændablaðinu þar sem fjallað er um mikilvægi smábátaútgerðar í íslenskum sjávarútvegi. Komið er inn á veiðikerfi smábáta og hvernig veiðar þeirra urðu sífellt öflugri. Greint frá háum hlut þeirra í heildarafla þorsks, ýsu og steinbíts, aflaverðmæti og fjölda báta.
Í lok greinarinnar er varpað ljósi á samþjöppun sem orðið hefur í smábátaútgerðinni og leitt að því líkum að einyrkinn eigi undir högg að sækja.