7 nýir á lista 50 stærstu

Á einu ári hafa orðið nokkrar breytingar á lista yfir 50 stærstu útgerða með krókaaflahlutdeild.  Sjö nýir aðilar hafa komið inn á listann og því jafnmargir horfið af honum.
Grunnur ehf var þann 1. mars sl. með hæstu hlutdeild í þorskígildum 4,568%.  Á sama tíma í fyrra var útgerðin í 2. sæti með 4,14%.  
Stakkavík ehf var með hæstu hlutdeildina í þorski og Einhamar ehf í ýsu.  Bæði fyrirtækin eins nálægt hámarki eins og hægt er, 3,999% í þorski og 4,999% í ýsu. 
Samþjöppun milli ára heldur áfram.  Fyrir einu ári voru 50 stærstu með 80,85% úthlutaðra þorskígilda en eru nú með 84,975%.
Hér má sjá lista yfir 50 stærstu.  Staða þeirra á listanum í mars í fyrra er sett í sviga.