Félagsmenn í Smábátafélaginu Hrollaugi á Hornafirði hafa ályktað um frumvarp atvinnuveganefndar um breytingu á strandveiðikerfinu. Afstaða félagsins er skýr, það mótmælir með öllu frumvarpinu.
Bent er á að frumvarpið verði að tryggja öllum strandveiðibátum 48 daga á sumri og ekki degi minna, sem þeir geta nýtt þegar aðstæður eru bestar til veiða yfir 4 mánaða tímabil.
Í ályktun Hrollaugsmanna er einnig lögð áhersla að ufsi ætti að vera með öllu frjáls við strandveiðar.
Formaður Hrollaugs er Vigfús Ásbjörnsson