Fontur, félag smábátaeigenda á N-Austurlandi hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið lýsir andstöðu með strandveiðifrumvarpið. „Hins vegar ef tryggðir eru 12 dagar í mánuði, 4 mánuði ársins, samtals 48 dagar, munum við styðja frumvarpið.
„YFIRLÝSING
Fontur, félag smábátaeigenda á Norðausturlandi, lýsir yfir andstöðu við frumvarp atvinnuveganefndar Alþingis sem lítur að strandveiðum. Teljum við það skerða hlut C svæðis, sem mun fækka bátum á svæðinu. Innan svæðisins eru brothættar byggðir sem mega ekki við því.Lítil veiði er á svæði C í maí og júní þannig að júlí og ágúst eru bestu mánuðirnir á svæðinu. Teljum við að lítið verði eftir af heildarkvótanum í þeim mánuðum, jafnvel að ágúst detti út.Þetta frumvarp mun hvetja menn til þess að færa sig frá svæði C yfir á svæði A.Hins vegar ef tryggðir eru 12 dagar í mánuði, 4 mánuði ársins, samtals 48 dagar, munum við styðja frumvarpið.
Vopnafirði, 27. mars 2018F.h. Fonts,Oddur Jóhannsson formaður