LS leggur til 40 daga

Grásleppuveiðar hófust 20. mars sl.  Sextán dagar eru því liðnir af vertíðinni hjá þeim sem hófu veiðar á fyrsta degi grásleppu.
Hafrannsóknastofnun hefur lokið útreikningum úr mælingum rannsóknaleiðangurs sem fram fór í byrjun mars.  Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu sendi LS niðurstöðurnar í dag.  Þar leggur stofnunin til að grásleppuafli fari ekki umfram 5.487 tonn, sem er 868 tonna minnkun milli ára. 
Grásleppunefnd LS fundaði um niðurstöður á mælingum Hafró fyrr í dag.  Á fundinum var ákveðið að leggja til við ráðuneytið að veiðidagar á yfirstandandi grásleppuvertíð verði 40 sem er 6 dögum færra en endanleg ákvörðun varð á síðustu vertíð.  Ákvörðun nefndarinnar er byggð á veiði undangenginna tveggja ára, þar sem þess er gætt að afli fari ekki umfram tillögu Hafrannsóknastofnunar.