Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð sem kveður á um að fjöldi daga til grásleppuveiða á yfirstandandi vertíð verði 32. Ákvörðunin kemur LS á óvart þar sem ljóst er að sá dagafjöldi mun ekki nægja til að ná þeim heildarafla sem Hafrannsóknastofnun hefur lagt til.
LS hefur reiknað út að miðað við gang veiða í upphafi vertíðar, þátttöku í þeim og sömu þróunar og var á síðustu vertíð, verði afli á 32 daga vertíð innan við 2/3 af þeim heildarafla sem Hafrannsóknastofnun ráðleggur. Allt útlit er því fyrir að ákvörðun ráðherra leiði til skerðingar á afla með tilheyrandi tekjutapi fyrir grásleppusjómenn. Auk þessa eru markaðir fyrir grásleppuhrogn og kavíar í hættu ef varan verður ekki fáanleg.
Fulltrúar LS munu funda með ráðuneytinu um málefnið nk. mánudag. Þar verða kynnt sjónarmið og útreikningar sem liggja á bakvið ósk grásleppunefndar um 40 daga. Á fundinum mun LS óska eftir rökstuðningi fyrir ákvörðun ráðherra um 32 veiðidaga.