Fyrsta umræða um frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða – strandveiðar – fór fram í gær. Að lokinni umræðu gekk málið til atvinnuveganefndar
Lilja Rafney Magnúsdóttir formaður atvinnuveganefndar er framsögumaður frumvarpsins.
Umræður um frumvarpið voru nokkrar og góður samhljómur í þeim. Allir sem tóku til máls tóku undir sjónarmið LS að við fyrirhugaðar breytingar verði að tryggja að ekki komi til stöðvunar veiðanna. 48 veiðidagar sem skipt yrði í 12 daga á hvern strandveiðimánuð.
Forsvarsmenn LS hafa verið boðaðir til fundar með nefndinni á morgun þann 12. apríl.