Fyrsti dagur strandveiða 2018 er í dag 2. mai. Alls höfðu 284 bátar virkjað leyfi til veiða. Eins og undanfarin ár eru flestir bátarnir á svæði A (Eyja- og Miklaholtshreppur – Súðavíkurhreppur) alls 132.
Taflan sem hér fylgir sýnir samanburð frá sl. tveimur árum á fjölda báta og skiptingu milli svæða við upphaf veiða.
Svæði |
2018 |
2017 |
2016 |
A |
132 |
176 |
182 |
B |
41 |
74 |
83 |
C |
29 |
47 |
51 |
D |
82 |
77 |
97 |
Samtals |
284 |
374 |
413 |
Myndin hér er að neðan er skjáskot tekið af vefnum Marine Traffic kl 06:55 í morgun og sýnir að vel hefur viðrað til strandveiða um land allt.