Strandveiðar hafnar í 10. sinn

 
 
Fyrsti dagur strandveiða 2018 er í dag 2. mai.  Alls höfðu 284 bátar virkjað leyfi til veiða.  Eins og undanfarin ár eru flestir bátarnir á svæði A (Eyja- og Miklaholtshreppur – Súðavíkurhreppur) alls 132. 
 
Taflan sem hér fylgir sýnir samanburð frá sl. tveimur árum á fjölda báta og skiptingu milli svæða við upphaf veiða.  
 

Svæði

2018

2017

2016

A

132

176

182

B

41

74

83

C

29

47

51

D

82

77

97

Samtals

284

374

413

 
 
 
Myndin hér er að neðan er skjáskot tekið af vefnum Marine Traffic kl 06:55 í morgun og sýnir að vel hefur viðrað til strandveiða um land allt.