Grásleppuvertíðinni 2018 lauk sl. sunnudag þann 12. ágúst og hafði þá staðið yfir frá 20. mars. Alls 222 bátar stunduðu veiðar á vertíðinni sem er 28 bátum færra en árið 2017. Vertíðin skilaði 4.486 tonnum, nánast sami afli og 2017.
Taflan sýnir grásleppuafla [tonn] sl. 6 vertíða og fjölda báta.
Grásleppa |
2018 |
2017 |
2016 |
2015 |
2014 |
2013 |
Afli |
4.487 |
4.542 |
5.413 |
6.253 |
4.004 |
4.542 |
Bátar |
222 |
250 |
245 |
323 |
225 |
286 |
Aflinn á vertíðinni var um 8% lægri en meðaltal tilgreindra sex vertíða.
Vertíðin hófst að venju 20. mars og kvað reglugerð á um 44 veiðidaga sem hver bátur hafði heimild til að stunda veiðarnar. Lengst af hafa dagar verið 32 en á vertíðinni 2017 voru þeir 46.
Við ákvörðun um fjölda daga var þess gætt að veiðin færi ekki umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar – 5.487 tonn. Gert var ráð fyrir að fleiri mundu stunda veiðar þar sem skortur var á hrognum á markaðinn og því búist við verulegri verðhækkun. Verð sem kaupendur buðu var hins vegar ekki nægilegt til að kveikja þann neista og áhuga sem þarf til að fjölgun verði. Þvert á spár fækkaði bátum milli ára og þrátt fyrir góðan afla nægði það ekki til að veiða það sem áætlanir gerðu ráð fyrir.
Taflan sýnir afla og ráðgjöf [tonn] sl. 6 vertíða og hlutfall.
Grásleppa |
2018 |
2017 |
2016 |
2015 |
2014 |
2013 |
Afli |
4.487 |
4.542 |
5.413 |
6.253 |
4.004 |
4.542 |
Ráðgjöf |
5.487 |
6.355 |
6.800 |
6.200 |
4.300 |
3.939 |
Hlutfall |
82% |
71% |
80% |
101% |
93% |
115% |
Miðað við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er hægt að segja að góð veiði hafi komið á óvart þar sem ráðgjöfin nú var 14% lægri en fyrir vertíðina 2017. Afli á nýlokinni vertíð var hins vegar víðast hvar ágætur og meðalafli á bát 20,2 tonn, eða 11% meira en í fyrra.